BEYOND THE SALE
Um viðburðinnFyrirlesararDagskráMiðar
Tryggja miða

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: júlí 2026 · Drög í yfirferð

1. Ábyrgðaraðili

28/10 ehf., kt. 520822-1430, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnað er á þessari síðu. Hafðu samband við hello@beyondthesale.is varðandi persónuvernd.

2. Hvaða upplýsingum er safnað

  • Nafn og netfang þegar þú kaupir miða eða skráir þig á biðlista.
  • Ef við á: nafn og kennitala fyrirtækis (fyrir reikningsgerð) og upplýsingar um ofnæmi eða fæðuóþol (fyrir skipulagningu veitinga). Þessir reitir eru valfrjálsir í miðakaupaferlinu.
  • Greiðsluupplýsingar (kortanúmer o.fl.) eru ekki geymdar af okkur. Þær eru unnar milliliðalaust af greiðsluþjónustuveitanda okkar, Teya.
  • Vafrakökur frá Meta (Facebook/Instagram pixel) til að mæla umferð og árangur markaðssetningar, einungis ef þú samþykkir það í vafrakökuborðanum.

3. Til hvers eru upplýsingarnar notaðar

  • Til að staðfesta miðakaup og senda kvittun og upplýsingar um viðburðinn.
  • Til að svara fyrirspurnum sem þú sendir okkur.
  • Til að mæla árangur auglýsinga, aðeins með samþykki þínu.

4. Þriðju aðilar

Við deilum upplýsingum með Teya (greiðsluþjónustuveitandi, undir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands) til að vinna úr greiðslum, og með Meta til markaðsmælinga ef samþykki hefur verið veitt. Hvorugur aðili fær aðgang að frekari upplýsingum en nauðsynlegt er fyrir sitt hlutverk.

5. Varðveislutími

Upplýsingum um miðakaup er haldið eins lengi og nauðsynlegt er vegna bókhalds- og lagaskyldu. Þú getur óskað eftir eyðingu annarra gagna hvenær sem er.

6. Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá aðgang að, leiðrétta eða óska eftir eyðingu þinna persónuupplýsinga. Sendu beiðni á hello@beyondthesale.is.

7. Hafa samband

hello@beyondthesale.is

BEYOND THE SALE
16.09.2026 · Harpa, Reykjavík
hello@beyondthesale.is
SkilmálarPersónuverndarstefna
© 2026 Beyond the Sale · Reykjavík
28/10 ehf. · kt. 520822-1430